<< Click to Display Table of Contents >> Navigation: Fyrstu skrefin > Stjórnun > Viðhald skráa > Hausar og táknmyndir (Logo) |
Fara skal í Stjórnun > Viðhald skráa > Hausar og táknmyndir
Hér er hægt að setja inn táknmynd (logo) fyrirtækis á sölureikninga og launaseðla.
Hér er hægt að bæta við línum í haus (efst) og fót (neðst) sölureiknings
Hægt er að skilgreina táknmyndir, Hausalínur og Textalínur niður á deildir og tungumál
Táknmyndir (Logo):
Til þess að setja inn nýja táknmynd þarf að smella á Fletta hnappinn og velja þá mynd sem nota skal.
•Leyfileg stærð:
- 260 punktar á breidd
- 55 punktar á hæð
•Einungis eru leyfðar myndir með endingarnar:
- jpg
- jpeg
- gif
- png