<< Click to Display Table of Contents >> Navigation: Verkbókhald > Skráning og viðhald > Tíma- og vöruskráning |
Skráning tíma felst í einfaldri skráningu vinnutíma, hvort sem þeir eru útskuldaðir eða ekki.
Lögð er áhersla á að ávallt sé ljóst hver greiðandi verksins er og einnig að fljótlegt sé að skrá á mörg mismunandi verk í einni lotu.
Fyrst þarf að velja verk og einnig verkhluta ef við á, við það kemur upp skráningargluggi þar sem skráningin sjálf fer fram. Efst í skjámyndinni er valið hvort skrá á tíma eða vörur á verkið.