<< Click to Display Table of Contents >> Navigation: Sölu og birgðakerfi > Fyrirspurnir > Sölufærslur |
Ef fyrirtæki er með skilgreindar víddir undir Stjórnun > Viðhald skráa > Víddir stýringar / Víddir skilgreiningar bætast við valsvæði fyrir víddir undir Sía svo hægt sé að gera fyrirspurnir eftir ákveðnum víddum.
Hægt er að sía fyrirspurnir út enn ítarlegra með því að haka úr því að sýna alla og velja í staðinn sérstök skilyrði.
Valið tímabil og sundurliðuð fyrirspurn keyrð. Einnig er hægt að haka við að Sýna samtölur og þaðan er svo hægt að fara í sundurliðun og alveg niður á reikning eða færslu í verkbókhaldi ef um það er að ræða.
Til þess að hægt sé að velja Sýna kostnaðarverð og framlegð þarf viðkomandi notandi að hafa leyfi til þess. Hægt er að gefa notendum leyfi undir Sölukerfi>Stjórnun>Stýringar og þar í stillingunni Sýna framlegð.
Einnig er hægt er að haka í eftir hverskonar tegund af fyrirspurn notandi vill fá ásamt því hvort sýna eigi samtals sölu.
Hnappurinn sendir listann í tölvupósti.
Hnappurinn bætir viðhengi við tölvupóstinn. Hnappurinn fjarlægir viðhengi. Hnappurinn sækir efnistexta og meginmál sem notað var síðast. Hnappurinn sækir fyrri efnistexta og meginmál. Ef hakað er við Sækja síðasta efni og meginmál sjálfkrafa er nýjasti efnistexti og meginmál sótt sjálfkrafa þegar nýr tölvupóstur er búinn til. Annars birtast þessi svæði auð.
Hnappurinn sendir valdar færslur úr listanum í tölvupósti.