<< Click to Display Table of Contents >> Navigation: Fyrstu skrefin > Stjórnun > Viðhald skráa > Flytja inn skrá > Birgðir |
Færsla þarf að vera samansett af eftirfarandi svæðum og röð:
1.Vörunúmer
2.Lager
3.Dagsetning
4.Birgðafærslutegund
5.Tilvísun
6.Skýring
7.Magn
Kerfið leyfir að fyrsta línan innihaldi dálkaheiti ef hakað er við „Skrá inniheldur hauslínu“.
Öll gögnin sem flutt eru inn í kerfið fara í gegnum sams konar villuleit og þau gögn sem slegin eru beint inn í kerfið, þess vegna gilda sömu reglur um öll svæðin.
Vörunúmer þarf að vera til í kerfinu fyrir.
Lager þarf að stemma við það sem er skráð í Stjórnun > Viðhald skráa > Lagerar.
Birgðafærslutegund er tala sem hefur eftirfarandi merkingu: 2 = innkaup, 3 = pöntun, 4 = leiðrétting, 5 = rýrnun við vörutalningu og 6 = aukning við vörutalningu.
Setja skal mínus við magn ef ætlunin er að færa af lager.
Dæmi um nokkrar línur væri:
12345;Fakta ehf;15.11.2016;2;Tilvísun;Skýring;10
12345;Fakta ehf;22.11.2016;5;Tilvísun;Skýring;-3