<< Click to Display Table of Contents >> Navigation: Fyrstu skrefin > Stjórnun > Viðhald skráa > Fyrirtækið |
Hér eru allar upplýsingar um fyrirtækið skráðar, ásamt öðrum mikilvægum stillingum
ATH!! Allt sem er stjörnumerkt (*) þarf að skrá.
Fara þarf í: Stjórnun > Viðhald skráa > Fyrirtækið
Stillinar skiptist upp í 5 flokka:
1. Upplýsingar um fyrirtækið
Hér eru skráðar helstu upplýsingar um fyirirtækið.
Þegar fyrirtækið er stofnað í Reglu koma sjálfkrafa inn upplýsingar um Kt og Nafn
2. Netfangs stillingar
Hér eru stillingar ef fyrirtæki vilja að öll skjöl sem send eru úr kerfinu,
t.d. reikningar og launaseðlar, fari í gegn um egin netþjón.
Ef þessi stilling er ekki notuð, þ.e. ef að ekki er hakað í að nota auðkenni fyrir póstfang,
sendist allur póstur í gegn um netþjónustu Reglu.
3. Banki
Þessar stillingar eru nauðsynlegar til þess að banka upplýsingar
fyrirtækis birtist á sölureikningum. Ef ekki er vilji fyirr því, þarf að
taka hakið úr.
4. Ýmislegt
Hér eru ýmsar stillingar sem hafa áhrif á nokkrum stöðum í kerfinu.
• Posi: Óvirkur reitur
• Samn.nr (Borgun): Stilling v/ Áskriftakerfis/kortakerfi
• Þema: Óvirkur reitur
•Tenging við Þjóðskrá: Haka þarf í þennan reit til þess að setja inn
Aðgangslykil sem þarft til að geta flett upp í Þjóðskrá í Reglu.
Lykilinn er sendur til viðkomandi eftir að búið er að sækja um aðgang að Þjóðskrá
með því að fara í Stjórnun > Viðhald skráa > Sækja um aðgang að Þjóðskrá
• Prenta OCR línu neðst á reikning: Haka þarf í þennan reit, ef á að hafa OCR rönd neðst á reikningi.
Þessi rönd, inniheldur greiðslu upplýsingar vegna reikningsins.
• Einingaverð í skráningu reikninga með vsk: Ef hakað í þennan reit, er reiturinn einingaverð í línum,
í skráningu reikninga útreiknaður með vsk.
• Einingaverð birt á reikningi með vsk: Ef hakað í þennan reit, birtist einingaverð á reikningi með vsk
• Sýna vsk aukalega á reikningum í mynt fyirtækis:
• Rafræn viðskipti: Ef hakað er í þennan reit birtist gluggi fyrir stillingar vegna rafrænna reikninga.
Sækja þarf um aðgengi af rafrænum reikningum með því að fara í Stjórnun > Viðhald skráa > Sækja um rafræna reikninga
5. GLN og verslun
Hér eru stillingar fyrir rafræna reikninga.
• GLN númer eru notuð fyrir deildarskipt og stærri fyrirtæki sem eru með t.d. margar verslanir.
• Notandanafn og lykilorð frá skeytamiðjunni (Inexchange/Unimaze) er sett inn hér til að tengja Reglu við skeytamiðju.
Það er gert eftir að búið er að sækja um rafræna reikninga.
•IBAN og SWIFT kóði. Þessi nr. eru notuð ef fyrirtæki eru með erlenda viðskiptavini.
•X400 einkenni eru notuð ef fyrirtæki eru að nota EDI skeyti. Það þarf að hafa samband við Deloitte og sæja um hjá þeim.