<< Click to Display Table of Contents >> Navigation: Launakerfi > Viðhald skráa > Launþegar > Starfsmannalisti |
Á þessum lista birtast allir þeir sem eru skráðir sem starfsmenn í fyrirtækinu.
Í byrjun birtast þeir með tákninu aftast í línu sem merkir að þeir eru ekki virkir sem launþegar.
Með því að smella á línu birtist skjámynd Skilgreining launþega þar sem skrá þarf nauðsynlegar viðbótarupplýsingar fyrir launþega.
Launþegi er gerður virkur með því að taka hakið af svæðinu Óvirkur í skjámynd Skilgreining launþega.
Einnig er hægt að gera launþega virkann með því að smella á táknið í starfsmannalista sem breytist þá í .
Til að breyta nafna/heimilis upplýsingum launþega er smellt á táknið fremst í línu.
Til þess að bæta við launþega á listann er smellt á Skrá nýjan launþega.