<< Click to Display Table of Contents >> Navigation: Sölu og birgðakerfi > Skráning og viðhald > Viðskiptamenn > Afslættir |
Hér er hægt að skilgreina afslætti viðskiptamanns eftir vöruflokkum eða vörunúmerum. Ef afsláttur er skilgreindur bæði hér og beint á viðskiptamann undir flipa „Grunnur“ ræður þessi skilgreining. Einnig ef afsláttur er skilgreindur hér bæði fyrir vöruflokk og vörunúmer ræður skilgreining á vörunúmeri. Ef vara er merkt þannig að hún leyfi ekki afslátt eða leyfir bara ákveðinn hámarksafslátt er tekið tillit til þess.