Eiginleikar

<< Click to Display Table of Contents >>

Navigation:  Sölu og birgðakerfi > Skráning og viðhald > Vörur >

Eiginleikar

Á flipanum Eiginleikar er hægt að skrá þá eiginleika sem hver vara býr yfir. Þessir eiginleikar geta t.d. verið mismunandi stærðir af vörunni.

 

Ef notandi vill skrá inn þrjár stærðir getur hann byrjað á að gefa afbrigðinu nafn og því næst á eftir þau gildi sem varan býr yfir t.d. Small | Medium | Large.

 

Eftir þeirri skráningu er hægt að gefa mismunandi verð, vörunúmer, strikamerki og magn eftir hverjum og einum eiginleika.

 

Vöruafbrigði uppfærast þegar yfirvaran er uppfærð. Hægt er að stilla hvort verð, heildsöluverð og kostnaðarverð vöruafbrigðanna fylgi yfirvörunni undir „Sölukerfi > Stjórnun > Stýringar“.

 

Athugið að til þess að Eiginleikar flipi sé sýnilegur þarf að merkja við Sýna flipa fyrir vöruafbrigði stýringu undir Sölukerfi > Stjórnun > Stýringar.

 

 

FIBSSA~1_img23