<< Click to Display Table of Contents >> Navigation: Vefverslunartenging > Pantanir > Yfirlit pantana |
Í valmynd vefverslunartengingarinnar er hægt að skoða yfirlit pantanna.
Í þessu yfirliti er hægt að skoða pantanir af vefversluninni og samsvarandi reikninga.
Ef það eru einhverjar pantanir sem eru ekki skráðar í reikninga er hægt að gera það hér.
Veljið tímabil og ýtið á "Sækja pantanir".
Pantanir sem er búið að skrá í kerfið eru merktar með grænu.
Ýtið á stækkunarglerið til að skoða reikninginn
Ýtið á pöntunarnúmerið til að skoða pöntunina í vefversluninni
Pantanir sem eru skráðar en eru ennþá í geymdum reikning eru merktar með gulu.
Pantanir sem er ekki búið að skrá í kerfið eru merktar með rauðu.
Til að bóka geymda reikninga, eða pantanir sem vantar, merkið þær pantanir og ýtið á "Bóka pantanir".
Hér er hægt að velja hvort það eigi að bóka pantanir beint sem reikning, eða sem geymdan reikning.
Þegar pantanir sem eru ekki til eru bókaðar, er möguleiki að bóka þær á aðra dagsetningu. Dagsetningunni er breytt í þessum reit.