<< Click to Display Table of Contents >> Navigation: Vefverslunartenging > Stillingar > Shopify |
Á þessari síðu eru skýringar fyrir stillingaratriði fyrir tengingar við Shopify.
Tengilyklar
Nánar um tengilykla í Shopify - Uppsetning og Shopify aðgangslykill.
Pantanir
Þessar stillingar eru fyrir hvernig pantanir af Shopify er skráðar í Reglu.
Deild - Deild sem pöntun er skráð á.
Lager - Lager sem er notaður fyrir vefverslunartenginguna. Allar birgðauppfærslur sem eru gerðar á þessum lager verða tengdar við vefverslunina, ef vefverslunartengingin er stillt á að halda utan um birgðir.
Meðhöndlun pantana - Þessi stilling stjórnar því hvernig er tekið á móti pöntunum af vefversluninni.
•Pöntun er bókuð þegar greiðsla er samþykkt (mælt með)
Pantanir berast í Geymda reikninga. Þegar Regla fær síðan skilaboð um að greiðsla sé staðfest, er Geymdi reikningurinn bókaður.
Athugið að handvirkar greiðsluleiðir eins og millifærslur senda ekki skilaboð um staðfesta greiðslu og þarf því að bóka þá geymdu reikninga handvirkt.
•Pöntun er bókuð í geymdan reikning
Pantanir berast í Geymda reikninga, þar sem það er hægt að yfirfara þá og síðan klára bókun.
•Pöntun er bókuð beint í reikning
Pantanir eru bókaðar beint í reikning.
Athugasemd reiknings - Hér er hægt að skrifa inn stuttan texta sem mun birtast fremst í athugarsemdarsvæði reikninga úr vefversluninni.
Reitur notaður sem kt.
Ef það er óskað eftir því að reikningar úr vefverslun séu skráðir á kennitölu, þá þarf að útbúa kennitölureit í greiðsluferlið á vefversluninni.
Reiturinn er útbúinn með því að breyta öðrum ónotuðum reit í kennitölureit með því að breyta þýðingunni á reitnum í Shopify.
Algengir reitir sem eru notaðir eru Fyrirtæki eða Íbúð (address 2).
Gestaviðskiptavinur
Fyrir hverja vefverslunartengingu þarf að skrá sérstakan Gestaviðskiptavin, sem allir reikningar frá vefversluninni eru skráðir á.
Þessi viðskiptavinur er ekki notaður þegar kennitölur fylgja pöntunum.
Vara sem sendingarkostnaður
Fyrir hverja vefverslunartengingu þarf að skrá vöru sem er notuð fyrir sendingarkostnað. Sendingarkostnaður af pöntunum verður skráður á þessa vöru.
Passið að þessi vara hafi leyft að Leyfa að yfirrita verð. Þegar þessi vara er notuð er alltaf sett inn verðið af pöntuninni.
Óþekktar vörur
Fyrir hverja vefverslunartengingu þarf að skrá svokallaða óþekkta vöru.
Þessi vara er notuð á pantanir í þeim tilvikum þar sem vörur annað hvort finnast ekki í Reglu, eða það vantar á þær Sku númer.
Eins og með vöruna fyrir sendingarkostnað, passið að hún sé skráð með Leyfa að yfirrita verð þar sem verðið sem kemur af pöntununum er alltaf notað.
Hér er líka valið í hvaða vsk. flokk þessi vara er. Veljið þann vsk. flokk sem ykkur þykir líklegast að þið séuð að selja úr.
Þessi vsk flokkur er einnig notaður þegar vörur eru búnar til í gegnum Frumstilling á vörum. Frumstilling á vörum
Atburðir og samstilling
Hérna koma svo ýmsar stillingar um hvernig tengingin mun hegða sér varðandi uppfærslur á vörum.
Það sem er hægt að samstilla milli Reglu og vefverslana er vöruheiti, vöruverð og birgðastaða, en við höfum á áætlun að útvíkka þetta í fleiri vörueiginleika.
Vörueigindi til að samstilla - Hér er still hvaða vörueiginleikar eru athugaðir þegar Samstilling vörum er keyrð. Sjá nánar í Samstilling.
Atburðir í Reglu
•Þegar vara er uppfærð í Reglu - Hér er valið hvaða vörueiginleika á að uppfæra í Shopify þegar vara er uppfærð í Reglu.
•Þegar vöru er eytt í Reglu - Hér er valið hvernig á að meðhöndla vörur í vefverslun þegar vöru er eytt í Reglu, eða þegar tengingu milli vara er eytt.
Atburðir í vefverslun
•Þegar vara er stofnuð í vefverslun (tilraunaverkefni) - Ef það er hakað í þennan reit þá munu vörur sem eru stofnaðar í Shopify líka verða stofnaðar í Reglu.
•Þegar vara er uppfærð í vefverslun (tilraunaverkefni) - Hér er valið hvaða vörueiginleika á að uppfæra í Reglu þegar vara er uppfærð í Shopify.
•Þegar vöru er eytt í vefverslun
Athugið að tveir af valmöguleikunum fyrir ofan eru tilraunaverkefni og ennþá í þróun. Þessi virkni gæti því ekki virkað sem skyldi og mun eiga til að breytast í framtíðinni.